|
|
 |
12.6.06
Ja jaeja tha er madur farin fra Grenoble! Thad var mjog skritid ad kvedja baeinn. Madur var ordinn eitthvad svo mikid heima tharna. En jaeja tha er madur kominn a sitt annad heimili: Hjaltlandseyjar!!!! Ja komin aftur til gomlu godu Hjaltlandseyja eftir thvilikt ferdalag i gegnum allt Frakkland og England og Skotland. Thetta var nu meira ferdalagid. Eg skrifa kannski blogg seinna um thad her og set myndir inn a myndasiduna. By the way thad eru komnar adeins fleiri myndir a myndasiduna en thaer eru ekki i timarod og ekki allar merktar en eg baeti kannski ur thvi seinna og set kannski fleiri inn. www.picturetrail.com/grenoble og www.picturetrail.com/grenoble1
Ja vid Sigrun erum annars a ferdalagi a leidinni heim og hofum lent i alls konar aevintyrum eins og vid var ad buast thegar vid ferdumst saman. Vid hofum sofid i farangursgeymslu i Paris og a barstolum i ferju til daemis. En nanari lysingar a threkverkum okkar i Frakklandi og Bretlandi koma seinna. Vid erum alveg uppgefnar nuna af thvi ad bera 3 storar thungar ferdatoskur fra sudur-Frakklandi til nordurenda Skotlands. Aetlum ad labba um baeinn og sitjast a kaffihus og ekki gera rassgat (pardon my french;) og kannski ad eg gefi henni a private tour of the harbour he he;).
Jaeja kaerar kvedjur fra Hjaltlandseyjum,
Frida ferdalangur fra Frakklandi.
Posted at 12.6.06 by grenoble
Permalink
31.5.06
Frakkland, Frakkland, Frakkland!
Jà Frakkland. Hvad getur madur sagt? Jà thetta var ekki alveg eins og vid bjuggumst vid en samt bùid ad vera rosalega gaman. Vid gerdum fullt af hlutum sem ég bjost ekki vid ad ég myndi nokkrun tima gera en var bara skemmtilegt i endann. Sumir eru ekki prenthaefir hér à thessari heimasidu thannig ad vid làtum thà bida til seinni tima;). En i heildina thà var thetta bara mjog skemmtilegt. Vid kynntumst fullt af folki, misskemmtilegu ad visu en thad er nù eins og gengur og gerist, en vid fraeddumst heilmikid og laerdum heilmikid af ad kynnast theim (flestum;). Vid kynntumst folki frà Islandi;), Svithjod, Thyskalandi, Russlandi, Moldaviu, Pollandi, Rumeniu, Brasiliu, Argentinu, Singapur, Kina, Bulgariu, Tekklandi, Englandi, Spàni, Peru og sidast en ekki sist Kanada sem greinilega er ekki mjog einsleit thjod;). Svo fengum vid heimsoknir frà foreldrum og systur hennar Erlu og svo Luke og svo Matthew og vid ferdudumst um Frakkland og forum medal annars à vinbùgard og laerdum allt um vingerd og svo i vinsmokkun og laerdum allt um hvernig à ad smakka vin. Thad er ekki eins audvelt og madur myndi halda. O nei. Thetta er voda vinna ad smakka vin (frekar skemmtilega vinna en vinna engu sidur;). Svo forum ég og Matthew til Annecy, Chomonix, Mont Blanc og hittum svo Erlu og Luke og Tonju og Sigrunu i Avignon. Thau héldu svo àfram til Antibes à strondina en ég o Matthew forum til gorges d'Ardeche sem er svona gljùfur eins og Grand Canyon (bara adeins minna;) og mjog àhugavert jardfraedilega séd;). Svo forum vid i Kalsithelli sem var rosalega gaman. Svo for MAtthew heim og svo for Luke heim og svo for Erla heim. Jà Erla fékk nog af skolanum hérna og àkvad bara ad fara heim ad vinna enda hef ég alltaf sagt ad hùn sé skynsom stùlka;). Skolinn hérna var nù heldur betur vonbrigdi og ekki baetti 5 vikna verkfallid stoduna. Thad var svolitid spes ad taka prof hérna lika thvi thad er ekkert gert til ad koma i veg fyrir svindl eda neitt svoleidis. Eg og Kanadiska vinkona okkar Laura sàtum i einu profinu og nemendur voru ad deila svorum allt i kringum okkur. Vid erlendu skiptinemarnir gàtum nottla litid sagt thvi thetta virtist vera thad sem nemendur hér gera thràtt fyrir ad thad standi à profbladinu ad svindl er brottrekstrarsok ùr skolanum. Yfirsetukennararnir thurftu svo sifellt ad sussa à nemendurnar thvi thad var of mikid talad i profinu. Vid hofdum aldrei séd annad eins og héldum vid nù ad thad vaeri nogu slaemt ad kennarar thurftu ad sussa à nemendurna i timum eins og i gaggo en thetta var nù alveg ùt i hott. En jaeja profin gengu eins og vid var ad bùast eftir 5 vikna verkfall og svo hellt yfir mann ollu lesefninu sem vid misstum af àsamt thvi sem var à upprunalegu àaetluninni (eda thad er ad segja madur var làtinn borga fyrir verkefnin sem madur hefdi àtt ad fà og thad ekkert odyrt) og allt à fronsku;). Fyrsta profid gekk bara àgaetlega enda gat madur bullad sig soldid ùt ùr thvi thràtt fyrir takmarkada haefni i màlnotkun med landfraeditexta à fronsku. Naesta prof var frekar erfitt thar sem madur fékk adeins um 6 kennslustundir yfir alla onnina og skildi varla thad sem kennarinn var ad tala um hvad thà glosurnar sem madur tok nidur eftir honum. Sidasta profid var allt i lagi en var i tveimur hlutum frà tveimur mismunandi kennurum. Fyrri kennarinn var mjog godur en seinni kennarinn taladi mjog skringilega fronsku og er ég ekki viss enn thann dag i dag ad thetta hafi verid franska en fyrirlestrarnir hans voru gjorsamlega oskiljanlegir og thvi nàdist ekki mikil vitneskja aftheim manni og var hans hluti eftir thvi. Sem sagt fall en god tilraun;).
Jaeja verd ad thjota. Of sein à kaffihus med Lauru. Mà ekki vera of sein. Erla skilur;).
Kvedja,
Frida.
Posted at 31.5.06 by grenoble
Permalink
7.4.06
Verkfall, fjallaferð, St. Patrick´s day, heimsóknir!
Já það er margt búið að gerast hér í Grenoble. Til að gera langa sögu stutta þá er enn verkfall í skólanum, fórum í fjallaferð til leigusalans okkar. Það var geðveikt gaman. Myndir af því koma inn á myndasíðuna bráðlega. Einnig var St. Patrik´s day (dagur heilags Patreks á góðri íslensku;) um daginn og fórum við á djammið á írskum pub. Ógeðslega gaman. Tókum íslenska þjóðlagatónlist (krummi svaf í klettagjá í keðjusöng;). Ójá og það var tekið upp á vídjó og allt he he). Það var þarna par sem hélt endilega að við værum írsk (3 Íslendingar og svíi) og bað um írskt þjóðlag til að bjarga St. Patrick´s deginum fyrir sig. Við héldum að það væri nú ekki vandamálið og tókum lagið meðan þau föðmuðust af gleði á dansgólfinu. Já maður getur nú glatt þessi frönsku grey með litlum lagstúf eða svo. Svo kom Gunna systir í heimsókn. Það var mjög gaman. Fengum fría skíðapassa hjá Stínu frænku á skíðasvæði sem heitir La Méaudre sem er frekar lítið en fínt og ætluðum að skella okkur þangað á skíði (já tókuði eftir "ætluðum"). Ég tékkaði á veðurspánni og skíðafærinu á netinu á miðnætti kvöldið áður og svo vöknuðum við kl. 06:45 daginn eftir og skelltum okkur upp í rútu sem var of sein að frönskum stíl by the way og keyrðum í um einn og hálfan tíma að skíðasvæðinu og svo var okkur allt í einu hent út í litlu smáþorpi og rútan keyrði burt. Ég labbaði þá inn á næstu tourist information og spurði hvar skíðasvæðið væri. Konan sagði að það væri hérna en að það hefði lokað í gærkvöldi ("GÆRKVÖLDI")!!!!. Ég sagðist hafa tékkað á netinu kvöldið áður og það hefði ekkert staðið um lokun skíðasvæðisins. Konan tékkaði þá á sömu síða og viti menn. LOKAÐ!!!!. Já þannig að ég varð að fara út og segja systur minni fréttirnar. Nú erum við fastar í litlum smábæ með allt skíðadraslið með okkur, skíðin, skóna, stafi og svo framvegis, og næsta rúta væri ekki væntanleg fyrr en eftir 4 tíma. C´est la France. Já þarna fékk hún systir mín aldeilis að kynnast Frakklandi beint í æð og á ekki lengri tíma. Greyið hún sem er vön regluseminni og perfectheitunum í Þýskalandi. En við héldum þá bara áfram eftir veginum með skíðin á öxlunum og ætluðum að labba í næsta bæ þar sem var líka skíðasvæði en sem var líka opið;). Það var bara 5 km í burtu. En það vildi svo til að það koma þarna kona sem bauð okkur far, ásamt 2 öðrum strandaglópum sem ætluðu líka á skíði, og keyrði okkur að næsta bær. Svo þurftum við að bíða þar eftir annari rútu á skíðasvæðið en við komumst þangað, fengum vondar pulsur, vondar franskar og skíðasvæðið var minna en Bláfjöll (já minna en Bláfjöll) en við skemmtum okkur bara stórvel. Vorum einar í skíðabrekkunni og fífluðumst bara á skíðunum og jóðluðum þýska jóðlsöngva á leiðinni niður og svona og fórum bara í Heidi fílinginn alveg he he. Það koma bráðum myndir af því líka á myndasíðuna okkar. Jæja næsta heimsókn er á mánudaginn og þá koma foreldrar hennar Erlu í heimsókn og vinkona hennar kemur svo á miðvikudaginn. Svo er ekki langt í að við fáum heimsóknir frá einum Ástrala og einum Breta en þeim hefur verið beðið svolítið lengi eftir;).
Jæja kærar kveðjur frá Frakklandi,
Fríða frægi frækni skíðafrömuðurinn í Frakklandi;).
Posted at 7.4.06 by grenoble
Permalink
23.3.06
Jei! Fleiri myndir! More pictures!
MYNDIR PHOTOS
Það eru komnar fleiri myndir á myndasíðuna. Þær eru ekki í neinni röð heldur bara í rugli. Það tekur allt of mikinn tíma að raða þeim eitthvað þannig að þær eru bara þarna í einni klessu í síðustu möppunni. Enjoy. Annars er ekkert nýtt að frétta héðan nema Erla er farin til Tignes á skíði og ég sit bara heima og sauma. Nei nei ætla að reyna að læra smá og svo kemur systir mín á laugardaginn og bara svaka stuð og svona fdslja (úpps sé ekki lyklaborðið fyrir tárum;). Var annars að tala í símann í gær við einn Breta sem ég kynntist eitt sinn á Íslandi fyrir nokkrum árum og haldiði þá að ég hafi ekki lent í kellingunni sem hellti sér yfir hana Erlu um daginn fyrir að tala of lengi í símann. Ég verð nú að segja að hún var bara frekar kurteis og vingjarnleg. Ég veit hvað hún Erla var að tala um um daginn;). He he nei hún er algjör grybba konan og kvartaði eitthvað um að ég talaði of hátt og svona. Jæja ég baðst bara afsökunar og sagðist verða búin eftir smá stund. Það varð nú ekkert verra en það þannig að ekki gat ég kvartað miðað við sögurnar sem ganga af henni. Svo bankaði hún nokkru síðar hjá fulla Rúmenanum vini okkar sem á það til að SÝNA öllum það í verki hvað honum finnst sjálfsbruggaða rúmenska vínið sitt gott og auglýsa vínið í leyðinni með því að vera ALLTAF fullur. Svolítið sniðug leið hjá honum finnst mér. Hann er greinilega með viðskiptavitið í auglýsingum í lagi. Því um leið og hann býður öllum smakk þá er hann með sýnishorn framan á peysunni sinni og svo sér maður greinilega þau eðal áhrif sem vínið hefur á mann á honum sjálfum og svo hlýtur það einnig að vera mjög bragðgott því af hverju væri hann annars búinn að drekka svona mikið? Hann greinilega notar sínar eigin vörur sjálfur og það veitir alltaf á gott í vöruviðskiptabransanum. Og einnig getur maður verið alveg handviss um að hann sé í raun að drekka sína eigin vöru því anganin finnst neðan úr dýpstu iðrum hans þegar hann talar og svo skilur hann eftir nokkra ælubita vel marineraða í rúmenska víninu á klósettinu svona af og til. Já hann er sko með auglýsingavitið í lagi hann rúmenski nágranninn okkar. Já en jæja hún bankaði hjá honum og hvæsti á hann að halda nú loksins kjafti. Ekki bjargaði rúmenska vínið honum í þetta sinn og kellingin ekki til í smakk þannig að hann neyddist til að fara út og drakka það þar. Jæja ætla að fara á bókasafnið til að ná í bók sem er ekki þar. Það er alltaf gaman að fara í svona erindislausar sendiferðir sér til skemmtunar. C´est la France;).
Kveðja,
Fríða.
Posted at 23.3.06 by grenoble
Permalink
20.3.06
Skólinn lokaður í dag eftir að hafa í annað skiptið hjólað eins og brjálæðingar í gegnum franska umferð bara til þess að komast að því að enn er skólinn "bloqué" eins og maður segir hér í France. Já erum alltaf svo hundaskíthræddar að mæta of seint í þennan tíma á mánudagsmorgnum eftir að við mættum einu sinni 5 mín. of seint og kennarinn flippaði út á strákana sem komu 2 mín. á eftir okkur inn. Hún öskraði á þá og hótaði að hleypa þeim ekki inn. Jæja ókei ekki beint voðalega hættulegar aðstæður en maður er bara ekki vanur, verandi kominn í háskóla, að kennarinn öskri á mann og hóti að henda manni út. Maður verður bara hræddur og lítill og vill fara heim (grenj grenj). En jæja þurftum ekki að hafa áhyggjur af því í morgunn því enn var skólinn lokaður og verður lokaður líka á morgunn. Svo ætla þeir að ákveða hvort þeir ætli að mótmæla fram á föstudag eða ekki. Já svo eru þeir að spekúlera hvort þeir fresti þá ekki prófunum fram í Júní sem er ekki gott fyrir litla skiptinema sem þurfa að fara heim að vinna um sumarið. Svo eru þeir líka að spá í að taka af okkur fríið okkar í maí (eða eins og það kallast heima: fyrirlestrarfrí;) en þá ætla akkúrat kærastarnir að koma í heimsókn og planið var að nýta fríið í ferðalög og svona já og nottla læra;).
Jæja c´est la France;) he he.
Kveðja,
Fríða.
Posted at 20.3.06 by grenoble
Permalink
15.3.06
Verkföll og mótmæli, mótmæli og verkföll!
Já eins og áður hefur komið fram á þessari indælu vefdagbók okkar eru Frakkar doldið fyrir að mótmæla. Já maður þarf ekki að eyða miklum tíma í Frakklandi til að sjá ein mótmæli eða tvö. Já við Erla rifum okkur á fætur eldsnemma í morgunskímunni til að hjóla í skólann og mæta í verklegann tíma í einhverjum frönskum viðbjóði. Eftir að hafa hjólað um franskar umferðargötur (en Frakkar eru einmitt þekktir fyrir einstaka tillitsemi og kurteisi í umferðinni;) þá mættum við loksins á réttum tíma í skólann. Nei nei þá var bara búið að sperra skólann af með vegavinnuskiltum vegna mótmæla. ARG!. Þessi mótmæli eru nú búin að standa í um 2 vikur. Síðasta fimmtudag ætlaði ég í frönskukennslu að gera heiðarlega tilraun til að læra þetta ylhýra hrognamál þeirra en þá var búið að sperra þann skóla af með ruslatunnum og vegavinnuskiltum. Ójá og ég var búin að eyða trammafarinu mínu og dröslast af stað en þá komst maður ekki einu sinni inn í bygginguna. Jæja það þýðir ekki að kvarta. Frakkar kunna þó að mótmæla almennilega. En á leiðinni heim í morgunn eftir þessa fýluferð þá ákváðum við að stoppa aðeins á markaðnum og kaupa nokkra ávexti. Þegar ég stend fyrir framan ávaxtaborðið þá kemur bíll og KEYRIR Á MIG. Já bara meðan ég er að versla ávexti. Það er ekki eins og ég hafi staðið á miðri hraðbraut. Nei þarna var markaður á svona lítilli götu sem var eiginlega ekki gata en þá finn ég allt í einu að taskan sem ég var með á bakinu kipptist til og þá hafði bara bíll komið og keyrt aftan á hana. Þetta var svona lítil drusla með pirruðum Frakka bakvið stýrið. Það hefði ekki verið hægt að flauta ef ég var fyrir honum nei nei um að gera að keyra bara aftan á svona stúlkur sem standa og versla sér ávexti. Ávaxtakaupmennirnir horfðu bara með svona frönskum "eh" svip eins og þetta væri daglegt baguette brauð og bara normal þarna við ávaxtaborðið. Ef ég hefði áttað mig á því fyrr þá hefði ég hlaupið á eftir honum og dregið hann út úr bílnum, hent honum í götuna og troðið upp í hann hundaskít (já það er sko nóg af honum á götunum þannig að hann hefði ekki þurft að bíða lengi eftir að smakka á honum) svo hefði ég neytt hann til að biðjast afsökunar á öllu sem er franskt. Jæja nóg komið af nöldri um Frakka. En það er svona það helsta sem rætt er um þegar skiptinemar koma saman;).
Annars er Erla ennþá með smá flensu þannig að við höfum ekki verið að gera neitt sérstakt þessa dagana. Ætlum samt að bæta úr því á næstu dögum. Í kvöld er kvöldmatur hjá norrænu þjóðunum (hinum íslensku stelpunum og sænsku stelpunni) og svo er kvöldmatur hjá íslensku þjóðinni á fimmtudaginn (íslendingarnir í Grenoble ætla að hittast;) og svo á föstudaginn höldum við upp á gamla frændsambandið okkar við Íra því þá er St. Patrick´s day og ætlum við að klæðast grænu og halda niður á Írska pöbbinn og halda upp á daginn að írskum sið (tedrykkja og heitar samræður um kartöfluhungursneyðina;). he he nei bjór bjór bjór og aftur bjór og írsk tónlist svo meiri bjór eitthvað grænt og svo meiri bjór með bjór og svo kannski smá bjór með. Við frestum sennilega skíðaferðinni sem var plönuð á laugardagsmorgunn kl. 06:00 til sunnudagsins he he.
Annars svo að þið haldið ekki að við séum einhverjir bitrir útlendingar og þolum ekki Frakka þá er það algjör misskilningur. Það er búið að vera alveg ágætt að vera hér í Frakklandi en þeir eiga það bara til að gera hlutina miklu erfiðari en þeir ættu að vera. Það virðist vera svona þjóðarstoltið að gera einfalda hluti flókna. Hér eru nokkur dæmi: 1. Það tekur viku að komast inn í skólakerfið hérna (á þessari viku eru um 52 ferðir með trammanum og 364 erindislaus hlaup á sitthvoran endann í Grenbole. Því ekki er hægt að hafa allar háskólabyggingarnar á sama staðnum;). Hver skrifstofa sem maður þarf að fara með enn eitt eyðublaðið á og fá undirskrift hefur svo sinn eiginn spes opnunartíma sem er ekki í neinu samræmi við raunveruleikann. Þannig að það er ekki hægt að gera allar ferðirnar í einu. Ónei maður verður að fara annað hvort á þennan stað eða hinn því þeir eru í sitthvorum endanum á bænum og opnir hálftíma á dag og á sama hálftímanum. Afleiðing: ARG!. Lausn: Hvernig væri að hafa sama skólann á sama stað? Bara svona tillaga;). 2. Það þarf að fylla út 23 já 23 eyðublöð til að opna bankareikning hérna (myndirnar á myndasíðunni sanna það;). Bara svona ósköp venjulegan bankareikning. Afleiðing: Regnskógar eyðast fyrr. Lausn: uh.... hvernig væri að nota minni pappír? Eða kannski hætta að streytast á móti nútímanum og nota tölvur. 3. Franska. Afleiðing: Óskiljanleg þjóð. Lausn: Lern english you stupid french;). 4. Frakkar. Afleiðing: Óteljandi. Lausn: hmmm.... 5. ALLT lokað á sunnudögum. Afleiðing: ALLT lokað á sunnudögum. Lausn: kannski ekki svo slæmt;). 6. ALLT lokað á mánudögum (nema sumt og ekki er hægt að vita HVAÐ er lokað og hvað ekki. Maður verður bara að giska). Afleiðing: Pirraðir skiptinemar. Lausn: uh.... hafa opið eins og annað siðmenntað fólk. 7. Nammi ódýrt. Afleiðing: Ég kaupi meira nammi;). Lausn: ? 8. Ekki er hægt að kaupa miða í bíó nema 20 mín. áður en myndin byrjar og svo seinkar sýningunni um hálftíma því allir eru enn í röðinni að kaupa miða. Afleiðing: pirraðir skiptinemar. Lausn: Kannski gekk þetta árið 1912 þegar fyrsta kvikmyndin var sýnd í Frakklandi og 2 mættu í bíóið en það þarf ekki að enn halda í þá reglu. 9. Hundakúkur allsstaðar á götunum. Afleiðing: Hundakúkur allsstaðar á götunum. Lausn: Fjarlægja göturnar. He he hvar ætla þeir þá að skíta múhahahaha. 10. Frakkar. Afleiðing: We´ve been through this;). Lausn: Flytja inn Þjóðverja;)? 11. Tölvurnar eru frá iðnbyltingunni og ganga fyrir kolum og eru enn með floppy diska og að undirrituð sé að kvarta yfir lágu tæknistigi segir sitt hvað um það;). Afleiðing: Morse kódið að koma sterkt inn aftur. Lausn: hmmm.... gee what could be done? hmmm.... Kannski að kaupa nýrri tölvur? No that´s not it! 12. Rúmenskir nágrannar. Afleiðing: Þurfum að smakka rúmenskt vín af og til. Klósettið allt út pissað af rúmenskum köllum vegna of mikillar drykkju af rúmensku víni. Lausn: Hver fílar ekki Rúmena;)? 13. Engar klósettsetur á almenningsklósettum vegna annars er þeim stolið. Afleiðing: Mætti halda að maður væri alltaf í Rúmeníu;). Lausn: Hvernig væri hmmm.... let me think.... að hafa bara enough toilets seats for all. Ég kýs þann pólitíkus sem kemur með þetta kosningarloforð. 14. Ítalir. Afleiðing: Æ þeir eru bara svo pirrandi. Lausn: Klippa þá frá meginlandinu og vona að þá reki eitthvað á haf út. Kannski aðeins lengra í átt að Ameríku;).
Jæja c´est la France.
Kveðja,
Fríða.
Posted at 15.3.06 by grenoble
Permalink
9.3.06
Já góðan daginn!
Það er voða lítið að gerast í Grenoble akkúrat þessa stundina. Ég sit og er að gera blogg (netdagbók;) og Erla er að vaska upp blessunin. Það var rigning í gær og frí í skólanum (one has nothing to do with the other but....) og við Erla sátum samviskusamar og lærðum. Já eigum að gera 3 bls. frönskuritgerð (á frönsku by the way;) og ætluðum sko aldeilis að spara okkur sporin með því að nota gamla ritgerð sem Erla átti og breyta henni eylítið. En þótt við höfðum ákveðið að reyna nú að sluksa aðeins í náminu vegna eigin geðheilsu þá kom upp gamla góða samviskusemin og erum við nú langt komnar með að skrifa nýja ritgerð oní þá gömlu (einnig hræðslan um að það uppgötvist að þetta sé sama ritgerðin;). En maður lærir nottla böns á því að endurskrifa ritgerðir. Eins og hún Sigrún vinkona okkar sagði: "maður lærir best á því að taka gamla ritgerð og breyta henni". Og förum við staðfastlega eftir þessum viskuorðum enda hverjar erum við að mótmæla henni?
Já annars er hún Erla mín komin með einhverja flensu og ætlar að vera heima í dag. Í dag skín þó sólin og er bara ágætis veður. Ég ætla hinsvegar að fara í skóverslunarleiðangur. Já ég þarf nauðsynlega á nýjum skóm að halda. Þeir eru farnir að detta í sundur og safna smásteinum er ég trítla um götur Grenoble. Held reyndar að þeir hafi gert uppreisn á la frensh style og mótmælt með því að fremja kamikaze (by the way núna eru búin að vera um 6 mómæli hérna og við aðeins búnar að vera hér um 4 vikur. Enda eru þriðjudaga mótmæladagar. Jább alltaf mótmæli á þriðjudögum og svo eitt svona "surprise" mótæli á fimmtudögum eða miðvikudögum). En jæja skómálið er ekki svo einfalt. Það vill nefnilega svo til að Frakka eru með eindæmum litlir sem kemur sér ágætlega fyrir mig í trammaferðum og svona að geta bara séð yfir fólkið en ekki bara í hnakkann á næsta manni eins og á Íslandi;). En þá eru bara mín skónúmer alltaf búin. Allar útsölur hafa skó frá 25-34 og svo frá 38-45. HVAR ER 36-37????!!!! Já hef traðkað inn í allar bloody skóbúðir í Grenoble og í Grand´ Place (Kringlan/Smáralind) og þarf víst að fara aðra umferð í dag. Æ já þið hélduð að þetta yrði bara ostar og vín ha? Oh nei. Í dag þarf ég að fara að versla skó. Það er sko aldeilis stritað manni út hérna. Eins og að hafa lent í fangabúðum nasista 1995 (já eftir að stríðinu lauk;). Já ókei kannski ekki svo slæmt en mér finnst bara svo leiðinlegt að versla skó. Sjálfboðaliði óskast til að koma til Alpaborgarinnar Grenoble þar sem bjórinn kostar 250 kr. kippan og sólin skín og versla skó handa Fríðu. Any offers? No? Jæja er þá farin í skóleiðangur.
Á tout á l´heure,
Fríða.
P.S. Það eru komnar fleiri myndir inn í myndaalbúmið. Smellið á linkinn "myndir" hér fyrir neðan;).
Posted at 9.3.06 by grenoble
Permalink
5.3.06
Jei það eru enn fleiri myndir komnar á myndasíðuna!
Já komumst loksins að því hvernig hlaða á myndir inn á svona myndasíðu. Til að skoða þær þarf bara að ýta á "myndir" hér fyrir neðan.
Annars er vetrarfríið okkar búið núna. Skólinn byrjar á morgun og svona. Ég komst að því að ég er eiginlega ekkert voðalega hrifin af svona fríum inn á mill skólans. Þetta er svona meira til að rétt gefa manni bragð af frelsinu og kippa því svo aftur til baka um leið og maður er farinn að njóta þess. Þetta er eitthvað sem Frakkarnir hafa fundið upp á svona rétt til að böggast aðeins meira í manni;).
Annars fórum við á skíði/snjóbretti í gær í L´alpe du Grand Serre. Það var ódýrasti skíðastaðurinn en var samt bara fínn. Ég prófaði "nýju" skíðin mín sem ég keypti á markaðnum á 20 Evrur og þau voru svona heldur stór og hællinn undan skónum brotnaði en þau virkuðu þó ágætlega þ.e. ef ég þurfti ekki að bremsa eða beygja;).
Jæja ætlum að gera við hjólin okkar á morgunn og reyna að hjóla í skólann til að spara trammafargjöldin;).
Arivaderchi,
Fríða.
Posted at 5.3.06 by grenoble
Permalink
3.3.06
Jæja loksins komnar myndir!!!! Í alvöru this time! (We think)
Posted at 3.3.06 by grenoble
Permalink
Já og núna getum við ekki sett inn neina mynd. Arg. Ætlum að athuga hvort við getum sett þær á einhverja aðra síðu.
Regardements,
Fríða og Erla.
Posted at 3.3.06 by grenoble
Permalink
|